VIÐ BJÓÐUM FJÖLBREYTTAR FERÐIR FYRIR ELDRI BORGARA
Kynntu þér væntanlegar ferðir
VIÐ BJÓÐUM SÉRFERÐIR FYRIR FYRIRTÆKI, HÓPA OG FÉLÖG
Sérferðir
Við sérhæfum okkur í hópferðum, jafnt okkar áfangastaði og eins á fáfarnari áfangastaði sem. Við bjóðum okkar þjónustu í skipulagningu og gerum tilboð í hópferðir, hjá okkur hefur safnast mikil þekking og hjá okkur starfa þaulvanir fararstjórar. Við úthlutum svo séraðgangi að ferðunum með lykilorði fyrir hvern og einn hóp.
Sérsniðnar ferðir fyrir eldri borgara
Höfum það gaman
– ferðumst saman
Ferðaskrifstofa eldri borgara er í eigu Niko ehf. sem er handhafi ferðaskrifstofuleyfis frá Ferðamálastofu. Það er okkar fremsta markmið að bjóða áhugaverðar ferðir með skemmtilegri afþreyingu, spennandi áfangastöðum og þægindum sem henta eldri borgurum.
Við tökum sérstakt tillit til þarfa eldri borgara og reynum að koma til móts við óskir þessa hóps á sem flestum sviðum. Einnig viljum við fá góðar ábendingar frá sem flestum. Hægt er að senda okkur tölvupóst á netfangið niko@niko.is eða hringja til okkar í síma 499-2960. Við svörum öllum fyrirspurnum samdægurs, alla virka daga.
Skelltu þér með okkur í ævintýri! Hvort sem það er í borg, sveit eða sól. Hér fyrir neðan má sjá úrval væntanlegra ferða sem eru sérhannaðar fyrir þarfir eldri borgara.














