Ferðaskrifstofa eldri borgara býður uppá spennandi ferð til Finnlands og Eistlands þar sem höfuðborgirnar Helsinki og Tallinn verða heimsóttar.

Margir hafa oft hugsað sér að ferðast til Helsinki en ekki látið verða af því. Enn færri hafa íhugað ferð til Eistlands en nú er kjörið tækifæri til að slá „tvær flugur í einu höggi“ Flogið verður með Icelandair til Helsinki að morgni og gist þar í 2 nætur. Síðan verður siglt yfir Finnlandsflóa með ferju og gist í Tallinn í 2 nætur. Á lokadegi er ferðast til baka til Helsinki þaðan sem flogið verður til Íslands. Gist er á góðum 4 stjörnu hótelum og bæði morgunverður og kvöldverðir innifaldir alla daga auk skoðunarferða á báðum stöðum.

Ferðatilhögun

Radison Red Helsinki lobby

Helsinki

Brottför með flugi Icelandair kl. 07:30 og lent í Helsinki kl. 14:00 að staðartíma (tímamismunur er +3 klst.). Fararstjóri tekur á móti hópnum við komuna og fylgir í rútu sem ekur inn í miðborgina á Radison Red hótelið þar sem dvalið verður fyrstu 2 næturnar. Innritun á hótel og síðan frjáls dagskrá. Kvöldverður á hótelinu kl. 19:00. 

Helsinki Cathedral and Market square

Helsinki skoðunarferð

Eftir morgunverð verður farið í hálfsdags skoðunarferð um borgina undir leiðsögn fararstjóra og komið til baka síðdegis. Meðal staða sem heimsóttir verða er Klettakirkjan og minnisvarðinn um Sibelius. Kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.

Old town of Tallinn

Helsinki – Tallinn

Eftir morgunverður er rólegur tími þar til herbergi eru afhent og farþegar halda með farangur sinn í rútu sem ekur hópnum að höfninni í Helsinki kl. 12.00. Þaðan er svo siglt með ferju áleiðis til Tallinn kl. 13.30. Rútan fylgir hópnum í ferjunni og ekur svo á hótelið, Radison Blu Olumpia, þar sem gist verður síðari 2 næturnar. Eftir komuna gefst kjörið tækifæri til að skoða sig um í gamla bænum og virða fyrir sér andstæður Tallinn í samanburði við Helsinki. Kvöldverður á hótelinu er kl. 19:00.

Main central square in Tallinn

Tallinn

Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um Tallinn þar sem fjölmargir staðir verða heimsóttir og góð tækifæri gefast til myndatöku. Komið á hótelið síðdegis og kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.

Old Port pier Helsinki Finland

Heimferð

Brottför af hótelinu kl. 09:00. Rúta ekur hópnum að höfninni þar sem innritun fer fram í ferju sem siglir til Helsinki kl. 10:30 og komið þangað kl. 12:30. Rútan fylgir hópnum í ferjunni og ekur á flugvöllinn þar sem innritun fer fram í flug Icelandair sem er með brottför kl. 15:00. Lent er í Keflavík kl. 15:40 að staðartíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Thorhallur Heiisson 11 2024Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri og leiðsögumaður okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem fararstjóri og leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með hópa íslendinga víða.

Verð á mann 269.000 kr. m.v. gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: 79.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald. Greiðsluseðill berst í heimabanka frá Niko ehf.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug Icelandair til og frá Helsinki – allir skattar og gjöld og 23 kg innrituð taska.
Gisting í 2 nætur á Radison Red Helsinki 4* með morgunverði.
Gisting í 2 nætur á Radison Blu Olumpia Tallinn 4* með morgunverði.
2ja rétta kvöldverður á hótelum 4 kvöld (drykkir ekki innifaldir).
Allur akstur og skoðunarferðir skv. ferðalýsingu.
Ferja milli Helsinki og Tallin báðar leiðir.
Íslensk fararstjórn.

Radison Red Helsinki 4*

Radison Blu Olumpia Tallinn 4*

Helsinki bottom 2