Þar sem villt náttúra, norræn arfleifð og fegurð mætast
Norður í Atlantshafi, mitt á milli Skotlands og Noregs, liggja Hjaltlandseyjar – eyjaklasi sem sameinar hrjúfa náttúru, djúpa sögu og einstaka menningararfleifð. Hér mætast haf og himinn, vindar móta landslagið og víkingaarfurinn er enn lifandi í örnefnum, tungutaki og siðum eyjaskeggja.
Ferðaskrifstofa eldri borgara býður nú í fyrsta skipti ferð til Hjaltlands sem er ólíkt öllu öðru í Skotlandi. Þótt eyjarnar tilheyri Skotlandi í dag er menningarleg sjálfsmynd þeirra sterklega norræn og mótuð af aldalangri tengingu við Norðurlönd. Víkingar réðu þar ríkjum í margar aldir og spor þeirra eru víða sjáanleg, allt frá fornleifum og sögum til hátíða sem fagna arfleifðinni með eldi, bátum og söng.

Náttúra eyjanna er bæði stórbrotin og viðkvæm. Brattar klettabrúnir rísa úr hafi, grænar mýrar teygja sig að sjóndeildarhring og hvítar sandstrendur liggja við ólgandi sjó. Fuglalíf er einstakt og á sumrin fyllast klettarnir af lundum, súlum og öðrum sjófuglum. Víða má einnig sjá seli og með smá heppni, hvali úti fyrir ströndinni.
Íbúar Hjaltlandseyja skilgreina sig fyrst og fremst sem Hjaltlendinga og gestrisni þeirra, jarðbundin lífssýn og sterk tenging við náttúruna setja svip sinn á heimsóknina. Smábæir og þorp bjóða upp á notalegt andrúmsloft, handverk, tónlist, sögu og matargerð sem byggir á hráefnum úr sjó og landi.
Í þessari einstöku ferð fáum við tækifæri til að kynnast fjölbreyttum hliðum Hjaltlandseyja, allt frá sögufrægustu stöðum og afskekktum eyjum til daglegs lífs, náttúruperla og menningar sem hefur mótast í þúsundir ára.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið með Icelandair FI 434 kl. 10:00 og lent í Edinborg um kl. 13:20. Þaðan er flogið áfram með flugi Logan Air LM 357 kl. 16:45 og lent á Hjaltlandseyjum kl. 18:10. Tímamismunur er +1 klst. Rúta bíður hópsins ásamt staðarleiðsögumanni og ekur okkur á Shetland Hotel sem staðsett er í Lerwick höfuðborg Hjaltlands. Eftir innritun er tilvalið að snæða kvöldverð á hótelinu (ekki innifallinn í verði ferðar).

Scalloway, Uradale-býli og Lerwick
Eftir morgunverð er ekið til Scalloway, fyrrum höfuðstaðar eyjanna. Þar heimsækjum við Carol Fullerton sem fræðir okkur um hina einstöku Shetland-hesta og sögu þeirra. Að því loknu liggur leiðin á Scalloway safnið þar sem saga eyjanna, norræn arfleifð og daglegt líf fyrr á tímum lifna við. Í hádeginu snæðum við á veitingastaðnum Da Haaf í Scalloway áður en haldið er aftur til Lerwick. Þar gefst tími til að njóta borgarinnar á eigin forsendum, ganga um miðbæinn og heimsækja meðal annars Shetland safnið og skjalasafnið fyrir þá sem vilja eða bara njóta miðbæjarins í rólegheitum.
Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Suður-Mainland
Brottför frá Lerwick til Hoswick kl. 9:00, að loknum morgunverði, þar sem við göngum um þorpið og heimsækjum upplýsingamiðstöðina, fáum kaffi og fræðslu um hina sterku prjónahefð Hjaltlandseyja hjá NielaNell. Þar gefst einnig tækifæri til að skoða og versla handverk, svo sem skartgripi frá Karlin Anderson eða prjónavörur frá NielaNell og Shetland Woollen Co.
Næst liggur leiðin til St. Ninian’s Isle, einstaks staðar þar sem piktneskur fjársjóður frá 9. öld fannst en staðurinn er einnig þekktur sem heimili Bain-fjölskyldunnar í sjónvarpsþáttunum Shetland. Þar gefst tími til göngu á hinni fallegu strönd. Í hádeginu snæðum við á Sumburgh Hotel áður en haldið er áfram á Jarlshof, eitt merkasta fornleifasvæði Skotlands, þar sem saga mannlífs spannar um 5.000 ár frá steinöld til miðalda.
Seinnipart dags heimsækjum við Sumburgh Head, þar sem fróðleikur um vitasögu, stríðsminjar og fjölbreytt fuglalíf bíður. Síðdegis er ekið aftur til Lerwick.
Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Unst – nyrsta byggða eyja Hjaltlandseyja
Brottför frá hóteli kl. 8:30 og ekið að ferjunni til Yell og áfram þaðan að ferjunni til Unst. Við komu til Unst gefst tækifæri til að nýta salernisaðstöðu áður en haldið er í heimsókn í endurgerðan víkingaskála og langskip sem veita góða innsýn í sögu og menningu svæðisins. Að því loknu er farið í Boat Haven sem er lítið og skjólgott bátalægi á Unst sem ber vitni um sjómennsku gamlla tíma og mikilvægi sjávar í daglegu lífi eyjarbúa.
Hádegisverður er snæddur í Haroldswick Hall. Þar við hliðina er Unst Heritage Centre staðsett og gefst þeim sem vilja kostur á að heimsækja safnið. Safnið geymir sögu eyjarinnar með áherslu á daglegt líf, sögu, náttúru og menningararf íbúanna. Eftir hádegisverð liggur leiðin í heimsókn í Shetland Reel Distillery sem er handverksverksmiðja sem framleiðir gin. Ginið er framleitt úr staðbundnum hráefnum, með sterkri tengingu við náttúru, hreint vatn og víkingaarf eyjarinnar.
Að heimsókn lokinni er siglt til baka frá Unst og stoppað á Yell þar sem Old Haa-safnið er heimsótt sem er sögulegt safn til húsa í einu elsta steinhúsi eyjarinnar og segir sögu daglegs lífs, sjósóknar og menningar íbúa Yell fyrr á öldum. Ferðinni lýkur með ferjuferð frá Yell og akstri að Busta House Hotel þar sem snæddur er kvöldverður.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Norður-Mainland
Kl. 9:00 að loknum morgunverði er ekið til Eshaness, með ljósmyndastoppi við Mavis Grind þar sem Atlantshafið og Norðursjórinn mætast. Við komu að Eshaness-klettum er farið í stutta göngu um stórbrotið landslagið. Að því loknu er haldið til Tangwick Haa-safnsins þar sem boðið er upp á te og kaffi. Ferðin heldur áfram til Braewick þar sem hádegisverður er snæddur á Braewick Café.
Eftir hádegisverð er ekið til Shetland Jewellery, með stuttri viðkomu við hinn þekkta Cake Fridge sem margir kannast við úr Shetland þáttunum. Í kjölfarið er farið í heimsókn á smíðaverkstæðið hjá Shetland Jewellery þar sem gestir fá innsýn í handverk og hönnun skartgripa þar sem innblástur er sóttur í náttúru Hjaltlandseyja. Að lokum er haldið aftur til Lerwick. Kvöldið er frjálst.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Heimferð
Brottför af hótelinu kl. 06:30. Rúta ekur hópnum á flugvöllinn þar sem innritun fer fram í flug Logan Air LM 352 með brottför kl. 08:50, lent í Edinborg kl. 10:15. Áfram er flogið heim til Íslands með flugi Icelandair FI 435 kl. 14:15 og lent í Keflavík kl. 15:50.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir er fararstjóri í ferðinni. Ingibjörg bjó lengi í Englandi og Skotlandi þar sem hún sinnti m.a. ritstörfum, uppistandi og viðburðahaldi. Ingibjörg hefur mikinn áhuga á ferðalögum, fólki og mismunandi menningu. Hún er mikill aðdáandi bókanna og sjónvarpsþáttanna Shetland og eftir heimsókn til eyjanna er hún einnig forfallinn aðdáandi smáhesta, otra og prjónahefðar Hjaltlendinga.
Verð: 419.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 49.000 kr.
Greiða þarf 50.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.
Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Edinborgar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Flug Logan Air frá Edinborg til Hjaltlandseyja og til baka
• Gisting í 5 nætur á Shetland Hotel 4*með morgunverði
• Hádegisverður alla dagana
• 3 kvöldverðir
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðalýsingu
• Fargjöld með ferjum
• Allur rútuakstur
• Íslensk fararstjórn Ingibjargar Rósu Björnsdóttur
Shetland Hotel ★★★
Hjaltlandseyjar á korti





























