Napólí, Sorrento, Amalfíströndin og Pompei
Napólí er án efa ein af áhugaverðustu borgum Ítalíu, iðandi af mannlífi á hverju götuhorni, mörkuðum, og veitingahúsum. Campania hérað er rómað fyrir matarmenningu, enda fæðingarstaður pizzunnar, og þekkt fyrir dásamlegu Mozzarella Osta og sítrónuræktina svo eitthvað sé nefnt.
Í þessari einstöku ferð munum við ekki aðeins heimsækja Napólí sjálfa, heldur einnig fjölmarga áhugaverða staði í grennd við borgina. Þar má nefna Pompei sem er á heimsminjaskrá UNESCO, Amalfíströndina, ásamt því að fara í dagsferð til Sorrento sem skartar fegurð sem hefur gert hana að einni þekktustu perlu Amalfí strandarinnar.
Þórhallur Heimisson er fararstjóri í þessari ferð og fræðir gesti um sögu og menningu svæðisins og heimsækir með þeim heillandi þorp, sólrík torg og staði þar sem má njóta útsýnis yfir landið og miðin. Töfrandi ferð um eitt fallegasta svæðið við Miðjarðarhaf sem skartar sínu fegursta í landslagi, matargerð og mannlífi. Sannkölluð perla Ítalíu.
Ferðatilhögun
Komudagur
Kl. 07:50. Flug Icelandair FI-562 frá Keflavík til Rómar. Fararstjórinn Þórhallur Heimisson tekur á móti hópnum á flugvellinum í Róm og ekur með honum í rútu á Hótelið okkar Hotel Royal Continental í Napoli sem er staðsett á einstökum stað beint við höfnina og með útsýni yfir hafið.
Á leiðinni verður stoppað og hægt að kaupa sér léttan kvöldverð.

Gönguferð um Napólí
Hótelið okkar er á frábærum stað við ströndina og nærri miðbænum í Napólí. Við göngum þess vegna beint frá hótelinu og niður í bæinn eftir morgunverð, þar sem Þórhallur segir okkur frá öllu sem fyrir augu ber, allt frá konungshöllinni, kastalanum og dómkirkjunni, yfir í göngugöturnar í gamla bænum, verslunarhverfi og hverfi Maradonna. Gönguferðin endar í hjarta borgarinnar á skemmtilegum stað í miðbænum þar sem hópurinn borðar alvöru Napolískan hádegimat saman.
Eftirmiðdagurinn er frjáls og veitir leiðsögumaður allar upplýsingar um það sem er hægt að nota daginn í.
Kvöldið er frjálst.

Amalfíströndin
Brottför frá hótelinu um morguninn í heilsdagsferð þar sem siglt er meðfram ströndum Amalfi-skagans. Ekið verður niður að höfninni í Salerno þar sem einkabátur bíður hópsins. Siglt verður frá Salerno til Positano og áfram til Amalfi þar sem hópurinn snæðir sameiginlegan hádegisverð við sjóinn, í framhaldinu er frjáls tími til að ganga um þann sögufræga bæ. Þeir sem hafa áhuga getað skoðað dómkirkjuna í fylgd með leiðsögumanni. Siglt er til baka til Salerno þar sem rúta bíður og ekið verður til baka til Napolí.
Kvöldið er frjálst.


Dagsferð til Sorrento
Dásamleg dagsferð þar sem náttúrufegurð og kyrrð við sjóinn mætast. Við keyrum suður með ströndinni frá Napólí. Á leiðinni gefst tækifæri til að njóta fallegs útsýnis yfir Vesúvíus og glitrandi Miðjarðarhafið. Við komum til hinnar sjarmerandi Sorrento sem er þekktri fyrir sítrónu ræktun, fallega gamla bæinn og hlýtt andrúmsloft. Þar fer hópurinn í stuttan og rólegan göngutúr um miðbæinn þar sem saga og menning Sorrento eru kynnt.
Við endum svo saman í hádegisverði undir sítrónutrjám á staði í hjarta miðbæjarins. Eftir hádegismat er frjálst tími til að ganga í búðir á göngugötunni og keyrt verður af stað til Napólí í eftirmiðdaginn.
Kvöldið er frjálst.
Pompei og hádegisverður í hlíðum Vesúvíusar
Brottför eftir morgunverð frá hótelinu í heilsdags ferð til Pompei þar sem gengið er um hina fornu borg sem grófst undir ösku og vikri þegar Vesúvíus gaus árið 79 e.Kr. Þórhallur leiðir ferðina ásamt staðarleiðsögumanni og lýsir því sem fyrir augu ber á þessum einstaka stað.
Eftir skoðunarferð dagsins verður ekið upp að hlíðum Vesúvíusar þar sem snæddur verður hádegismatur með stórbrotnu útsýni yfir Napólíflóann. Boðið verður upp á þriggja rétta léttan hádegisverð þar sem framreiddir eru árstíðabundnir réttir í einstakri náttúru.
Kvöldið er frjálst.

Heimferð
Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og keyrt til FCO-flugvallarins í Róm. Þaðan verður flogið með flugi Icelandair FI-563 kl. 15:45 til Íslands. Lent í Keflavík kl. 18:35.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Þórhallur Heimisson verður fararstjóri og leiðsögumaður okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem fararstjóri og leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með hópa íslendinga víða.
Verð á mann: 359.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í eins manns herbergi er 103.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug frá Keflavík til Rómar og til baka, allir skattar og gjöld
• 23 kg innrituð taska
• Gisting á Hotel Royal Continental 4* með sjávarútsýni að hluta í Napoli í 5 nætur með morgunverði
• Allur rútuakstur til og frá flugvelli, hóteli og að öllum stöðum skv. ferðalýsingu
• 4 hádegsiverðir
• Aðgöngumiðar, bátsferðir og þjónusta staðarleiðsögumanna skv. ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhalls Heimissonar
Hotel Royal Continental ★★★★































