Madeira – heillandi eyja í Atlantshafi

Madeira, eða „eyja blómanna“ eins og aðdáendur kalla hana, er eyja, sem tilheyrir Portúgal, paradís með heittempruðu loftslagi undan ströndum Marokkó.

Madeira státar af gnægð blóma, gróskumiklum gróðri, fjölbreyttu landslagi, frábærum gönguleiðum, dýrindis mat og góðu loftslagi allt árið um kring þar sem er milt eða jafnvel hlýtt yfir vetrarmánuðina.

Madeira Hotelmynd

Madeira er vinsæll áfangastaður Ferðaskrifstofu eldri borgara. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Funchal. Gist er á hinu glæsilega fjögurra stjörnu hóteli Hotel Pestana Promenade Ocean Resort í 8 nætur. Hálft fæði er innifalið í verði ferðarinnar, þ.e. morgunverður og kvöldverður. Öll herbergin eru með svölum, loftkælingu og baðherbergi með vönduðum hreinlætisvörum. Boðið verður upp á skoðunarferðir um eyjuna sem kynntar verða farþegum þegar nær dregur ferðinni.

Madeira er eyja í Atlantshafi undan ströndum Marokkós, nokkurn spöl í norður af Kanaríeyjum, og tilheyrir Portúgal. Madeira er þekkt fyrir fallega náttúru með fjalllendi, grænum skógum, blómstrandi görðum og útsýni yfir Atlantshaf. Eyjan er einnig þekkt fyrir mikla vínframleiðslu og þá sérstaklega Madeiravín sem er vinsælt að drekka sem fordrykk eða með eftirrétti. 

Madeira er vinsæll ferðamannastaður þar sem veðurfarið er milt allt árið um kring og bjóðast möguleikar á fjölbreyttum útivistar- og slökunarferðum. Hægt er að stunda golf, vatnasport og siglingar sem eru vinsælir tómstunda- og afþreyingarkostir fyrir gesti sem heimsækja eyjuna.

Hótelið, ferðatilhögun, fararstjóri, verð og bóka ferð

Hótel Pestana Promenade Ocean Resort

Hótelið okkar er ákaflega glæsilegt 4* hótel á mjög góðum stað við aðal-strandgöngugötuna í Funchal, höfuðstað eyjarinnar. Á hótelinu eru inni- og útisundlaug, heitir pottar, heilsulind (SPA) og líkamsræktarsalur. Hálft fæði er innifalið í verði ferðarinnar, þ.e. morgunverður og kvöldverður. 

Herbergin eru innréttuð með harðviðargólfum og björt og mjög rúmgóð. Öll herbergin eru með svölum, loftkælingu og baðherbergi með vönduðum hreinlætisvörum. Hinn rómaði veitingastaður hótelsins, Pestana Ocean Resort, býður m.a. sérrétti frá Madeira. Matur og drykkir eru einnig í boði allan daginn í fallegum garði við hótelið sem er umlukinn pálmatrjám og fallegum gróðri. Heilsulindin býður uppá úrval af slökunarmeðferðum og auk þess sauna og tyrkneskt bað.

21. apríl 2026:
Flogið er með beinu flugi Icelandair með flugi FI518 kl. 9:20 og lent í Funchal á Madeira kl. 15:05. Tímamismunur er +1 klst. Fararstjóri flýgur með hópnum og fylgir honum á Hotel Pestana Promenade 4* og aðstoðar við innritun. Þarna verður dvalið í 8 nætur. Engin skipulögð dagskrá er þá daga sem ferðin stendur yfir en boðið verður upp á valdar dagsferðir sem kynntar verða farþegum þegar nær dregur ferðinni. Þessar dagsferðir eru ekki innifaldar í verði ferðarinnar og þátttaka er valfrjáls.

29. apríl 2026:
Farið með rútu frá hótelinu á flugvöllinn í Funchal kl. 13:30 þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI519 kl. 16:05. Lent er í Keflavík kl. 19:55. 

Anna Sigurdar FstjFararstjóri: Anna Sigurðardóttir. 

Anna er lífsglöð og hefur óbilandi áhuga á ferðalögum, náttúru og mannlegum samskiptum. Hún hefur búið á Malaga, unnið með mislöngum hléum í ferðabransanum síðan 2006, ferðast mikið hérlendis sem og víðs vegar um heiminn og talar nokkur tungumál.

Verð: 395.000 kr. á mann.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi 149.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug Icelandair frá Keflavík til Madeira og til baka, allir skattar og gjöld.
23 kg innrituð taska er innifalin
Gisting á Hotel Pestana Promenade 4* í 8 nætur.
Hálft fæði – morgunverður og kvöldverður alla daga.
Rútuakstur til og frá Funchal-flugvelli.
Íslensk fararstjórn.

Myndband frá Madeira

Madeira Footer