Stokkhólmur er stærst borga á Norðurlöndum og höfuðborg Svíþjóðar. Borgin er byggð á nokkrum hólmum eða eyjum innan um vötn sem tengjast skerjagarðinum við Eystrasalt.

Stokkhólmur býður upp á stórbrotna byggingarlist og fallega náttúru á margan hátt, fjölda verslana og veitingastaða og iðandi mannlíf.

Ferðskrifstofa eldri borgara býður á ný hópferð eldri borgara til þessarar glæsilegu borgar og gist verður í 4 nætur á hinu gamalgróna Sheraton Stockholm Hotel 4* sem staðsett er í miðborginni við höfnina, andspænis sænsku konungshöllinni og Riksdagen – sænska þinghúsinu. Hótelið stendur m.a. við Vasagatan sem er ein aðal verslunargata borgarinnar og frá hótelinu er stutt í verslanir og veitingahús. Farið verður í siglingu út í skerjagarðinn, heimsókn í ABBA safnið og einnig VASA safnið auk skoðunarferðar um borgina. Þá verður sameiginlegur kvöldverður öll kvöldin á hótelinu þaðan sem gott útsýni er að höfninni.

Stokkholmur Panorama 02

Ferðatilhögun

Sheraton Stockholm Hotel 04

Innritun og frjáls dagskrá

Flogið frá Keflavík kl. 07:35 og lent á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi kl. 12:45 að staðartíma. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins þar sem Þóhallur Heimisson fararstjóri tekur á móti hópnum og ekur með í rútu á Sheraton hótelið þar sem dvalið verður í 4 nætur. Komið á hótelið um miðjan dag þar sem innritun fer fram.

Frjáls dagskrá fram eftir degi.

Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00.

Stokkholmur – Gamla Stan

Skoðunarferð um borgina

Lagt af stað kl. 10:00 í 3ja klst. skoðunarferð um borgina með rútu þar sem fararstjóri mun fræða farþega um það sem fyrir augu ber. Komið aftur á Sheraton um kl. 13:00.

Frjáls dagskrá fram eftir degi.

Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00.

shutterstock 1494247604 ny web

Sigling og Gamla Stan

Farið í 2ja klst. siglingu kl. 11:00 með bát sem leggur frá höfn skammt frá hótelinu þar sem fararstjóri mun segja frá staðháttum, áhugaverðum stöðum og byggingum sem prýða borgina.

Eftir siglinguna mun fararstjóri ganga með hópinn frá bryggju yfir í Gamla Stan (Old Town) þar sem konungshöllin er staðsett en í þessum gamla hluta borgarinnar er stórkostlegt að upplifa mannlíf, menningu og ýmislegt annað sem gleður augu og eyru, þ.m.t. stóra torgiđ viđ Nóbelshöllina þar sem jólamarkađur er haldinn ár hvert. Einnig er fjöldi góðra veitinga- og kaffihúsa sem gaman er að heimsækja.

Frjáls dagskrá fram eftir degi en frá Gamla Stan er stutt að ganga yfir brúna að Sheraton hótelinu.

Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00.

9C HW6wY

Abba og Vasa söfnin

Lagt af stað með rútu kl. 10:00 áleiðis í ABBA safnið við Djurgården en safnið opnaði árið 2013 og er algerlega ómissandi að heimsækja. Þar upplifa ferðalangar alvöru ABBA-stemningu og geta rifjað upp sögu þessarar stórbrotnu hljómsveitar.

Hægt verður að kaupa sér hádegisverð á veitingastað við hlið safnsins (ekki innifalið í verði ferðarinnar).

Laust eftir hádegi gengur fararstjóri með hópinn nokkur hundruð metra að Vasa safninu þar sem er ađ finna Vasa skipið sem sökk við Stokkhólm í jómfrúarferð sinni árið 1628. Rúta sækir mannskapinn um miðjan dag og ekur að hóteli.

Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00.

Stokkholmur Adalmynd 2025

Heimferðardagur

Lagt af stað með rútu kl. 13:30 og ekið á Arlanda flugvöll þaðan sem brottför er með flugi FI309 kl. 17:10. Lent er í Keflavík kl. 18:25 að staðartíma.

Verð, innifalið, fararstjórn og bóka ferð

Verð: 279.000 kr.  á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi  er  66.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Flug Icelandair til Stokkhólms fram og til baka – allir skattar og gjöld.
Gisting í 4 nætur á Sheraton Stockholm 4* með morgunverði.
2ja rétta kvöldverður á Sheraton öll kvöld (drykkir ekki innifaldir).
Skoðunarferð með rútu um borgina ásamt leiðsögumanni.
Sigling um skerjagarðinn og gönguferð að Gamla Stan ásamt fararstjóra.
Aðgangseyrir að ABBA safni og Vasa safni.
Allur rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka og í allar skoðunarferðir skv. lýsingu.
Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhallar Heimissonar.

Thorhallur Heimisson Ag 2023Þórhallur Heimisson verður fararstjóri og leiðsögumaður okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem fararstjóri og leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með hópa íslendinga víða.

Sheraton Stockholm Hotel ★★★★

Stokkholmur Panorama