Aðventan í Kaupmannahöfn er engri lík þar sem danska hugtakið „hygge“ fær að njóta sín frá degi til dags á þessum æðislega tíma ársins. Aðventan fyrir Dönum er einn huggulegasti tími ársins þar sem vinir hittast, deila mat og eyða „hygge“ stundum með sínu nánasta fólki, með heitu glöggi við hönd að gera klárt fyrir jólin.
Flogið með Icelandair frá Keflavík á sunnudagsmorgni 30. nóvember. Dvalið er á hinu glæsilega hóteli 1 Hotel Copenhagen í miðborg Kaupmannahafnar þaðan sem stutt er á Strikið, í verslanir eða á veitingastaði. Hótelið hefur nýlega opnað eftir endurbætur en var áður Skt. Petri sem margir þekktu.
Dagskrá ferðanna tekur mið af þörfum eldra fólks og er bæði menningarleg, fræðandi og skemmtileg. Á komudegi er snæddur ekta danskur matur á veitingahúsinu Karla og á mánudagsmorgni er farið er í gönguferð um gamla bæinn undir leiðsögn Ástu Stefánsdóttur. Á þriðjudegi er haldið í heimsókn í Jónshús þar sem Halla Benediktsdóttir staðarhaldari tekur á móti hópnum og fræðir um sögu þessa merka húss. Síðar um kvöldið fer hópurinn á Restaurant Kronborg og snæðir kvöldverð. Aðgöngumiði í Tívolígarðinn er innifalinn í verði ferðarinnar og getur hver og einn farið þangað þegar hentar. Þá er farið í skemmtisiglingu á lokadegi þar sem jazzbandið Scandinavian Rythmboys leikur skemmtilega tónlist meðan siglt er um síkin og borgin skoðuð frá öðru sjónarhorni. Síðdegis er svo haldið með rútu á Kastrup flugvöll þaðan sem brottför er um kvöldið með Icelandair til Keflavíkur.

Ferðatilhögun
Flogið frá Keflavík með flugi Icelandair, FI204 kl. 07:45 og lent á Kastrup flugvelli kl. 11:45 að staðartíma. Tímamismunur er 1 klst. Ásta Stefánsdóttir fararstjóri tekur á móti hópnum og fylgir í rútu sem bíður við flugstöðina. Ekið í gegnum borgina að hinu glæsilega hóteli 1 Hotel Copenhagen (áður Hotel Skt. Petri) þar sem dvalið verður í 3 nætur meðan á ferðinni stendur. Innritun fer fram og síðan er frjáls tími til að skoða sig um í borginni.
Kl. 18.00 er lagt af stað í stutta göngu að veitingastaðnum Karla við Dantes Plads þar sem snæddur verður vel útilátinn ekta danskur matur sem er innifalinn í verði ferðarinnar ásamt 1 drykk að eigin vali. Gengið til baka að hótelinu um kl. 19.30 og gestir njóta þess að hvíla sig eftir langan dag.
Kl. 10:00 safnar fararstjórinn Ásta Stefánsdóttir hópnum saman í andyri hótelsins þaðan sem lagt verður af stað í göngu um gamla bæinn á slóðir Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar sem ólu manninn í borginni fyrir hart nær 200 árum. Göngunni lýkur við Kongens Nytorv þar sem upplagt er að heimsækja einn elsta „pub“ borgarinnar, Hvids Vinstue og bragða á jólaglögginni sem Danir smakka á þann 11.11. kl. 11:11 ár hvert. Frjáls dagskrá það sem eftir lifir dags og tilvalið að kíkja á jólskreytingar og jólavarning t.a.m. í stórverslun Magasin du Nord.
Kl. 10:00 ekur rúta mannskapnum að Jónshúsi þar sem Halla Benediktsdóttir, staðarhaldari, tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins og einkum veru þeirra Jóns Sigurðssonar og frú Ingibjargar sem bjuggu á miðri 19. öld. Eftir heimsóknina er gengið til baka að hótelinu í gegnum Rosenborg garðinn en einnig er frjálst að halda beint í miðbæinn og eyða deginum þar.
Kl. 18.30 er lagt af stað í stutta göngu að veitingastaðnum Kronborg í Brolæggerstræde sem er einn elsti veitingastaður borgarinnar. Þar verður vel tekið á móti hópnum og boðið uppá ekta danskan „Julefrokost“ sem er innifalinn í verði ferðarinnar ásamt 2 drykkjum að eigin vali. Eftir að máltíðinni lýkur fylgir fararstjóri hópnum til baka að 1 Hotel Copenhagen.
Kl. 11:00 er tékkað út af hóteli og töskur settar í örygga geymslu hótelsins fram að brottför síðdegis.
Kl. 11:30 gengur fararstjóri ásamt hópnum að Stormbruen þar sem bátur á vegum DFDS Kanal Tours bíður við lítinn bryggusporð ásamt jazzhljómsveitinni „The Scandinavian Rythm Boys“ sem leikur jazz og og tengda tónlist í 90 mínútur meðan siglt er um síki Kaupmannahafnar, Christianshavn, Litlu Hafmeyjunni og mörgum fleiri stöðum. Komið til baka að landi um kl. 13:30. Eftir það gefst frjáls tími næstu 4 klst. til að versla, snæða eða skoða sig um í borginni áður en haldið verður af stað á Kastrup flugvöll með rútu frá 1 Hotel Copenhagen um kl. 18:00. Komið verður á Kastrup um kl. 18:30 þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI217 sem er með brottför kl. 21:40 og lendir í Keflavík kl. 23:55.
Verð, innifalið og bóka ferð
Verð: 229.000 kr. m.v. gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: er 59.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Kaupmannahafnar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Allar rútuferðir til og frá hóteli og innan Kaupmannahafnar.
• Gisting á 1 Hotel Copenhagen í 3 nætur ásamt morgunverði.
• Skoðunarferð um gamla bæinn og heimsókn í Jónshús.
• Kvöldverðir á Karla og Restaurant Kronborg.
• Aðgöngumiði í Tívolí.
• Sigling um síkin á lokadegi.
• Íslensk fararstjórn.
1 Hotel Copenhagen
Jazzbandið Scandinavian Rythmboys
Jazzbandið Scandinavian Rythmboys leikur skemmtilega tónlist meðan siglt er um síkin og borgin skoðuð frá öðru sjónarhorni.