Aðventan í Kaupmannahöfn er engri lík þar sem danska hugtakið „hygge“ fær að njóta sín frá degi til dags á þessum æðislega tíma ársins. Aðventan fyrir Dönum er einn huggulegasti tími ársins þar sem vinir hittast, deila mat og eyða „hygge“ stundum með sínu nánasta fólki, með heitu glöggi við hönd að gera klárt fyrir jólin.
Flogið er með Icelandair frá Keflavík á sunnudagsmorgni 29. nóvember. Dvalið er á 25hours Hotel í miðborg Kaupmannahafnar þaðan sem stutt er á Strikið, í verslanir eða á veitingastaði.
Dagskrá ferðanna tekur mið af þörfum eldra fólks og er bæði menningarleg, fræðandi og skemmtileg. Á komudegi er snæddur ekta danskur matur á veitingahúsinu Karla og á mánudagsmorgni er farið er í gönguferð um gamla bæinn undir leiðsögn Ástu Stefánsdóttur. Á þriðjudegi er haldið í heimsókn í Jónshús þar sem Halla Benediktsdóttir staðarhaldari tekur á móti hópnum og fræðir um sögu þessa merka húss. Síðar um kvöldið fer hópurinn á Restaurant Kronborg og snæðir kvöldverð. Þá er farið í skemmtisiglingu á lokadegi þar sem jazzbandið Scandinavian Rythmboys leikur skemmtilega tónlist meðan siglt er um síkin og borgin skoðuð frá öðru sjónarhorni. Að lokinni siglingu er haldið heim á hótel þar sem rúta bíður hópsins og haldið er út á flugvöll þaðan sem brottför er síðdegis.

Ferðatilhögun

Flogið frá Keflavík með flugi Icelandair, FI204 kl. 07:35 og lent á Kastrup flugvelli kl. 11:45 að staðartíma. Tímamismunur er 1 klst. Ásta Stefánsdóttir fararstjóri tekur á móti hópnum og fylgir í rútu sem bíður við flugstöðina. Ekið í gegnum borgina að 25hours Hotel þar sem innritun fer fram og síðan er frjáls tími til að skoða sig um í borginni.
Kl. 18:00 er lagt af stað í stutta göngu að veitingastaðnum Karla við Dantes Plads þar sem snæddur verður vel útilátinn ekta danskur matur sem er innifalinn í verði ferðarinnar ásamt 1 drykk að eigin vali. Gengið til baka að hótelinu um kl. 19:30 og gestir njóta þess að hvíla sig eftir langan dag.

Kl. 10:00 safnar fararstjórinn Ásta Stefánsdóttir hópnum saman í andyri hótelsins þaðan sem lagt verður af stað í göngu um gamla bæinn á slóðir Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar sem ólu manninn í borginni fyrir hart nær 200 árum. Göngunni lýkur við Kongens Nytorv þar sem upplagt er að heimsækja einn elsta „pub“ borgarinnar, Hvids Vinstue og bragða á jólaglögginni sem Danir smakka á þann 11.11. kl. 11:11 ár hvert. Frjáls dagskrá það sem eftir lifir dags og tilvalið að kíkja á jólskreytingar og jólavarning t.a.m. í stórverslun Magasin du Nord.

Kl. 10:00 ekur rúta mannskapnum að Jónshúsi þar sem Halla Benediktsdóttir, staðarhaldari, tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins og einkum veru þeirra Jóns Sigurðssonar og frú Ingibjargar sem bjuggu á miðri 19. öld. Eftir heimsóknina er gengið til baka að hótelinu í gegnum Rosenborg garðinn en einnig er frjálst að halda beint í miðbæinn og eyða deginum þar.
Kl. 18:30 er lagt af stað í stutta göngu að veitingastaðnum Kronborg í Brolæggerstræde sem er einn elsti veitingastaður borgarinnar. Þar verður vel tekið á móti hópnum og boðið uppá ekta danskan „Julefrokost“ sem er innifalinn í verði ferðarinnar ásamt 2 drykkjum að eigin vali. Eftir að máltíðinni lýkur fylgir fararstjóri hópnum til baka að 25hours Hotel.

Kl. 11:30 gengur fararstjóri ásamt hópnum að Stormbruen þar sem bátur á vegum DFDS Kanal Tours bíður við lítinn bryggusporð ásamt jazzhljómsveitinni The Scandinavian Rythm Boys sem leikur jazz og og tengda tónlist í 90 mínútur meðan siglt er um síki Kaupmannahafnar, Christianshavn, að Litlu Hafmeyjunni og mörgum fleiri stöðum.
Komið til baka að landi um kl. 13:30. Gengið er heim að hóteli og lagt af stað á Kastrup flugvöll með rútu um kl. 14:15. Flogið er með flugi Icelandair FI217 með brottför kl. 17:05 og lendir í Keflavík kl. 19:30.
Verð, innifalið og bóka ferð
Verð: 239.000 kr. á mann m.v. gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: er 49.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Kaupmannahafnar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Allar rútuferðir til og frá hóteli og innan Kaupmannahafnar eins og fram kemur í ferðalýsingu.
• Gisting á 25hours Hotel í 3 nætur ásamt morgunverði.
• Skoðunarferð um gamla bæinn og heimsókn í Jónshús.
• Kvöldverðir á Karla og Restaurant Kronborg.
• Sigling um síkin á lokadegi.
• Íslensk fararstjórn.




































