Ferðaskrifstofa eldri borgara býður eldri borgurum í skemmtilega ferð til Edinborgar en borgin er af mörgum talin fegurst allra borga í Skotlandi.

Edinborg er borg sem sameinar sögur, dularfulla fegurð og lifandi menningu á einstakan hátt. Á þröngum steinlögðum götum gamla bæjarins mætast miðaldastemning og nútímalegt borgarlíf, þar sem kastalar, hallir og söguleg hús rísa hátt yfir borgina. Hér er eins og fortíðin sé alltaf rétt handan við hornið.

Í þessari fjölbreyttu fimm daga ferð gefst tækifæri til að kynnast bæði hjarta borgarinnar og töfrum skoskrar náttúru. Farið verður í skoðunarferð út fyrir borgina og ferðast um fallegar sveitir landsins norður af Edinborg, m.a. siglt með fljótabát á hinu fallega stöðuvatni Loch Katrine. Farið verður í Edinborgarkastala auk Stirling kastala og þar að auki á ekta skoska söng- og danssýningu „The Spirit of Scotland“ þar sem tónlist, dans og hefðir landsins fléttast saman við ljúffengan fjögurra rétta kvöldverð. Í Leith bíður einnig einstök innsýn í konunglega sögu með heimsókn um borð í Royal Yacht Britannia, fyrrum konunglegt skip bresku konungsfjölskyldunnar, þar sem hægt er að stíga inn í heim sjóferða, hefða og konunglegs lífs.

Edinborg street view of Royal Miles

Þessi ferð sameinar sögu, menningu, náttúrufegurð og skemmtilega upplifun – fullkomin leið til að kynnast Edinborg og Skotlandi á eftirminnilegan hátt. Flogið verður með Icelandair til Edinborgar þar sem gist verður í 5 nætur. Morgun- og kvöldverðir eru innifaldir alla daga og íslensk fararstjórn Ingibjargar Rósu Björnsdóttur. 

Ferðatilhögun

Apex Waterloo Place Hotel 03

Innritun og frjáls tími

Flogið er með Icelandair FI 434 til Edinborgar og lent þar kl. 13:20. Ekið er sem leið liggur að Apex Waterloo Place Hotel 4* þar sem gist er í 5 nætur.

Frjáls tími frá innritun og fram að kvöldverði sem snæddur er á hótelinu.

Edinburgh city view from Carlton Hill

Skoðunarferð um Edinborg

Lagt af stað í skoðunarferð kl. 09:00 um áhugaverða staði í Edinborg, t.d. Old & New Town, Carlton Hill og Holyrood. Þaðan verður ekið að Edinborgarkastala sem gnæfir yfir borginni og býður upp á stórbrotna sýn yfir Edinborg ásamt heillandi innsýn í sögu Skotlands. Skoskur leiðsögumaður fylgir hópnum í samráði við fararstjóra. Skoðunarferð dagsins lýkur í kastalanum og hver og einn fer á eigin vegum heim á hótel.

Frjáls dagskrá fram eftir degi en kvöldverður er snæddur á hótelinu kl. 19:00.

Loch Katrine in the Scottish Highlands

Stirlingkastali, sveitasetur og sigling á Loch Katrine

Brottför með rútu kl. 09:00 áleiðis að Stirlingkastala sem á sér fornfræga sögu líkt og Edinborgarkastali. Eftir heimsóknina í kastalann verður ekið norður í land og á leiðinni höfð viðdvöl á fallegu sveitasetri við bæinn Callander þar sem mögulegt er að kaupa hádegismat (ekki innifalið í verði). Kl. 14:15 verður siglt með fljótabát um stöðuvatnið Loch Katrine og hægt að njóta frábærs útsýnis og stórkostlegs landslags.

Komið til baka á hótelið síðdegis þar sem kvöldverður er snæddur kl. 19:30.

Stirling Castle

Royal Yacht Britannia

Royal Yacht Britannia og sýningin Spirit of Scotland Show

Dagurinn hefst með brottför frá hótelinu klukkan 10:00, þegar haldið er í skemmtilega hálfsdagsferð til hafnarhverfisins Leith sem hefur á síðustu árum þróast í eitt líflegasta svæði Edinborgar. Þar bíður okkar heimsókn í hið sögufræga Royal Yacht Britannia, fyrrum konunglegt skip bresku konungsfjölskyldunnar. Um borð gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í líf og ferðir konungsfjölskyldunnar og upplifa hvernig þetta glæsilega skip þjónaði sem fljótandi heimili þeirra í áratugi.

Ekið til baka á hótelið og frjáls tími til kl. 18:30 þegar rúta leggur af stað frá hótelinu og ekur á hina vinsælu sýningu Spirit of Scotland Show. Þar blandast saman kraftmikil tónlist, skoskur dans og hefðir landsins í líflegri og skemmtilegri sýningu sem veitir einstaka innsýn í menningu Skotlands.

Fjögurra rétta kvöldverður ásamt einum drykk er innifalinn í sýningunni.

Að lokinni sýningu um 21:30 ekur rútan hópnum til baka á hótelið.

Show Night

Walking around edinburgh city centre Scotland

Frjáls dagur

Frjáls dagur í Edinborg til að skoða sig vel um síðasta dag ferðarinnar.

Kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.

Edinburgh skyline with castle

Heimferðardagur

Eftir útritun af hóteli er lagt af stað klukkan 11:00 á flugvöllinn þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI435 með brottför kl. 14:15.

Áætluð lending er í Keflavík kl. 15:50.

Fararstjórn, verð, innifalið og bóka ferð

Ingibjorg RosaIngibjörg Rósa Björnsdóttir  er fararstjóri í þessari ferð auk enskumælandi staðarleiðsögumanna. Ingibjörg Rósa er hagvön á Bretlandi eftir margra ára búsetu þar, bæði í suðri og norðri.

Verð: 359.000 kr.  á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi  er  109.000 kr.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðunni.

Flug Icelandair til Edinborgar og til baka – allir skattar og gjöld
Farangursþjónusta BagBee
Gisting í 5 nætur á Apex Waterloo Place Hotel 4* með morgunverði
3ja rétta kvöldverður á hótelinu 4 kvöld af 5 (drykkir ekki innifaldir)
4ra rétta kvöldverður ásamt einum drykk á sýningunni Spirit of Scotland Show
Allur akstur og skoðunarferðir skv. ferðalýsingu
Aðgöngumiði á „The Spirit of Scotland Show“ 
Aðgöngumiðar að köstulum
Aðgöngumiði í siglinguna á Loch Katrine
Aðgöngumiði í Royal Yacht Britannia
Íslensk fararstjórn Ingibjargar Rósu Björnsdóttur allan tímann og leiðsögn að hluta til á ensku

Ekki innifalið
Þjórfé
Vegabréfsáritun (UK ETA)

Apex Waterloo Place Hotel ★★★★

Edinborg street view of Royal Miles Footer