Um okkur

Ferðaskrifstofa eldri borgara er í eigu Niko ehf. Það er okkar fremsta markmið að framleiða áhugaverðar ferðalausnir sem innihalda skemmtilega afþreyingu, spennandi áfangastaði og þægindi sem henta eldri borgurum. Við tökum sérstakt tillit til þarfa eldri borgara og reynum að koma til móts við óskir þessa aldrushóps á sem flestum sviðum.

Sigurður K. Kolbeinsson
Forstjóri 

Sigurður er eigandi Niko ehf. ásamt Eddu D. Sigurðardóttur en hann hefur rekið fyrirtækið síðan 2004, upphaflega í Kaupmannahöfn. Sigurður hefur komið víða við í ferðaþjónustu og starfaði sem ungur maður hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn í kringum 1980 og síðar hjá Island Tours í Kaupmannahöfn. Sigurður annast yfirstjórn Niko Travel Group auk framleiðslu á nýjum ferðum.

Netfang: skk@niko.is

Dalla Rannveig Jónsdóttir
Skrifstofu- og sölustjóri

Dalla Rannveig Jónsdóttir hóf störf hjá Niko Travel Group í apríl 2024 og sinnir skrifstofu- og sölustjórn Niko Travel Group. Dalla starfaði áður hjá Meniga í 10 ár og þar áður hjá MAST á Selfossi.

Netfang: dalla@niko.is

Sædís Íva Elíasdóttir
Framleiðslustjóri

Íva hóf störf hjá Niko Travel Group í september 2024 og mun sinna framleiðslustjórn og utanumhaldi á fjölmörgum af ferðum Ferðaskrifstofu eldri borgara og Kólumbus Ævintýraferða. Íva starfaði s.l. 12 ár sem stjórnandi hjá Arion Banka á Suðurlandi og býr að góðri reynslu í samskiptum við fjölmarga viðskiptavini.

Netfang: iva@niko.is

Anna M. Kvikan Sigurðardóttir
Ferðaráðgjafi

Anna hóf störf í söludeild Niko Travel Group í nóvember 2024 og sinnir almennri þjónustu og ferðaráðgjöf til viðskiptavina Ferðaskrifstofu eldri borgara og Kólumbus Ævintýraferða, auk sölu á lúxus siglingum með Silversea. Anna hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu frá störfum sínum s.l. áratugi.

Netfang: anna@niko.is

Arna Þorsteinsdóttir
Markaðsstjóri

Arna hóf störf hjá Niko Travel Group í ársbyrjun 2024 og stýrir markaðsstarfi allra þeirra vörumerkja sem falla undir Niko. Arna hefur starfað í markaðsmálum í áratug, með mikla og fjölbreytta reynslu. Arna var eigandi og stjórnandi hjá auglýsingastofunni Sahara og gegndi veigamiklu hlutverki í þróun og stækkun á starfsemi þeirra síðastliðin ár. 

Netfang: arna@niko.is

Hildur Jónsdóttir
Svæðisstjóri á Ítalíu

Hildur starfar sem svæðisstjóri Niko Travel Group á Ítalíu og annast skipulag og bókanir fyrir hópa á vegum Kólumbus Ævintýraferða og annarra sérhópa sem til okkar leita. Hildur hefur búið og starfað á Ítalíu í 20 ár og þekkir land og þjóð mjög vel. 

Netfang: hildur@niko.is

Edda D. Sigurðardóttir

Edda er annar eigenda Niko ehf. og annast eignaumsýslu á vegum Niko ehf. auk sérverkefna sem tengjast einstökum ferðum á vegum Ferðaskrifstofu eldri borgara og Kólumbus Ævintýraferða. 

Netfang: edda@niko.is

Gísli Jafetsson
Fararstjóri

Gísli starfar sem aðal fararstjóri Ferðaskrifstofu eldri borgara. Hann hefur komið víða við á undanförnum árum og er m.a. mjög reyndur í Færeyjum. Gísli er þekktur fyrir hvað hann heldur vel utan um hópinn á hverjum tíma. Gísli hefur mikil tengsl við samfélag eldri borgara en hann var um árabil framkvæmdastjóri FEB. 

Netfang: gisli@niko.is

Sr. Þórhallur Heimisson
Fararstjóri

Sr. Þórhallur er mjög reyndur fræðimaður sem hefur ferðast víða og m.a. sérhæft sig í ferðum til sögufrægra staða eins og Róm og Ísrael.  Hann á að baki ára langa reynslu sem fararstjóri og leiðsögumaður hjá ferðaskrifstofunni VITA en sinnir nú sérverkefnum á sviði fararstjórnar fyrir Ferðaskrifstofu eldri borgara og Kólumbus Ævintýraferðir. 

Netfang: thorhallur@niko.is

Kristinn Blöndal
Fararstjóri

Kristinn hefur verið búsettur erlendis s.l. 40 ár og býr um þessa mundir á Costa Blanca svæðinu, hann er m.a. mjög reyndur í fararstjórn og ferðaskipulagningu. Jafnfram hefur hann góða þekkingu á staðháttum auk góðrar tungumálakunnáttu en hann talar 7 tungumál, þ.m.t. spænsku. Kristinn leggur áherslu á fræðslu um sögu og upplifum á þeim áfangastöðum þar sem hann starfar sem fararstjóri.

Heimir Óskarsson

Heimir er hönnuður vörumerkis og auglýsinga. Jafnframt sinnir Heimir vefsíðumsjón fyrir Niko Travel Group. Hann býr að áratuga reynslu sem hönnuður og starfaði m.a. á auglýsingastofum s.s. Íslensku auglýsingastofunni, Árnasonum og Tíu punktum.