Stokkhólmur býður upp á stórbrotna byggingarlist og fallega náttúru á margan hátt, fjölda verslana og veitingastaða og iðandi mannlíf.
Ferðskrifstofa eldri borgara býður á ný hópferð eldri borgara til þessarar glæsilegu borgar og gist verður í 4 nætur á hinu gamalgróna Sheraton Stockholm Hotel 4* sem staðsett er í miðborginni við höfnina, andspænis sænsku konungshöllinni og Riksdagen – sænska þinghúsinu. Hótelið stendur m.a. við Vasagatan sem er ein aðal verslunargata borgarinnar og frá hótelinu er stutt í verslanir og veitingahús. Farið verður í siglingu út í skerjagarðinn, heimsókn í ABBA safnið og einnig VASA safnið auk skoðunarferðar um borgina. Þá verður sameiginlegur kvöldverður öll kvöldin á hótelinu þaðan sem gott útsýni er að höfninni.
27. apríl: Flogið frá Keflavík kl. 07:35 og lent á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi kl. 12:45 að staðartíma. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins þar sem Sr. Þóhallur Heimisson fararstjóri tekur á móti hópnum og ekur með í rútu á Sheraton hótelið þar sem dvalið verður í 4 nætur. Komið á hótelið um miðjan dag þar sem innritun fer fram. Frjáls dagskrá fram að kvöldmat sem hefst kl. 19:00 á hótelinu.
28. apríl: Lagt af stað kl. 10:00 í 3ja klst. skoðunarferð um borgina með rútu þar sem fararstjóri mun fræða farþega um það sem fyrir augu ber. Komið aftur á Sheraton um kl. 13:00 og frjáls dagskrá fram eftir degi. Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00
29. apríl: Farið í 2ja klst. siglingu kl. 11:00 með bát sem leggur frá höfn skammt frá hótelinu þar sem fararstjóri mun segja frá staðháttum, áhugaverðum stöðum og byggingum sem prýða borgina. Eftir siglinguna mun fararstjóri ganga með hópinn frá bryggju yfir í Gamla Stan (Old Town) þar sem Konungshöllin er staðsett en í þessum gamla hluta borgarinnar er stórkostlegt að upplifa mannlíf, menningu og ýmislegt annað sem gleður augu og eyru, þ.m.t. stóra torgiđ viđ Nóbelshöllina þar sem jólamarkađur er haldinn ár hvert. Einnig er fjöldi góðra veitinga- og kaffihúsa sem gaman er að heimsækja. Frjáls dagskrá fram eftir degi en frá Gamla Stan er stutt að ganga yfir brúna að Sheraton hótelinu. Kvöldverður þar kl. 19:00.
30. apríl: Lagt af stað með rútu kl. 10:00 áleiðis í ABBA safnið við Djurgården en safnið opnaði árið 2013 og er algerlega ómissandi að heimsækja. Þar upplifa ferðalangar alvöru ABBA-stemningu og geta rifjað upp sögu þessarar stórbrotnu hljómsveitar. Hægt verður að kaupa sér hádegisverð á veitingastað við hlið safnsins (ekki innifalið í verði ferðarinnar) en laust eftir hádegi gengur fararstjóri með hópinn nokkur hundruð metra að Vasa safninu þar sem er ađ finna Vasa skipiđ sem sökk við Stockhólm í jómfrúarferð sinni árið 1628. Rúta sækir mannskapinn um miðjan dag og ekur að hóteli. Kvöldverður þar kl. 19:00.
1. maí: Heimferðardagur. Lagt af stað með rútu kl. 10:30 og ekið á Arlanda flugvöll þaðan sem brottför er með flugi FI307 kl. 13:50. Lent er í Keflavík kl. 15:10 að staðartíma.
Verð: 239.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 59.000 kr.
Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
• Flug Icelandair til Stokkhólms fram og til baka – allir skattar og gjöld.
• Gisting í 4 nætur á Sheraton Stockholm 4* með morgunverði.
• 2ja rétta kvöldverður á Sheraton öll kvöld (drykkir ekki innifaldir).
• Skoðunarferð með rútu um borgina ásamt leiðsögumanni.
• Sigling um skerjagarðinn og gönguferð að Gamla Stan ásamt fararstjóra.
• Aðgangseyrir að ABBA safni og Vasa safni.
• Allur rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka og í allar skoðunarferðir skv. lýsingu.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn sr. Þórhallar Heimissonar.
• Hádegisverður í Uppsala á lokadegi án drykkja.
Bóka
Stokkhólmur 27. apríl – 1. maí 2025
Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka
fyrir staðfestingargreiðslu.
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.