
Margir hafa oft hugsað sér að ferðast til Helsinki en ekki látið verða af því. Enn færri hafa íhugað ferð til Eistlands en nú er kjörið tækifæri til að slá „tvær flugur í einu höggi“ Flogið verður með Icelandair til Helsinki að morgni og gist þar í 2 nætur. Síðan verður siglt yfir Finnlandsflóa með ferju og gist í Tallinn í 2 nætur. Á lokadegi er ferðast til baka til Helsinki þaðan sem flogið verður til Íslands. Gist er á góðum 4 stjörnu hótelum og bæði morgunverður og kvöldverðir innifaldir alla daga auk skoðunarferða á báðum stöðum.
Fararstjóri er sr. Þórhallur Heimisson sem er öllum hnútum kunnugur á þessum slóðum.
11. maí: Brottför kl. 7:35 með flugi Icelandair kl. 07:30 og lent í Helsinki kl. 14:00 að staðartíma (tímamismunur er 3 klst.). Fararstjóri tekur á móti hópnum við komuna og fylgir í rútu sem ekur inn í miðborgina á Scandic Simonkenttå þar sem dvalið verður fyrstu 2 næturnar. Innritun á hótel og síðan frjáls dagskrá. Kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.
12. maí: Eftir morgunverð verður farið í hálfsdags skoðunarferð um borgina undir leiðsögn fararstjóra og komið til baka síðdegis. Meðal staða sem heimsóttir verða er Klettakirkjan og minnisvarðinn um Sibelius. Kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.
13. maí: Morgunverður og síðan eru herbergi afhent og farþegar halda með farangur sinn í rútu sem ekur hópnum að höfninni í Helsinki. Þaðan er svo siglt með ferju áleiðis til Tallinn kl. 10.30 og komið þangað kl. 13:00 (sama tímabelti). Við komuna bíður rúta sem ekur hópnum að Nordic Hotel Forum þar sem gist verður síðari 2 næturnar. Eftir hádegi gefst kjörið tækifæri til að skoða sig um í gamla bænum og virða fyrir sér andstæður Tallinn í samanburði við Helsinki. Kvöldverður á hótelinu er kl. 19:00.
14. maí: Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um Tallinn þar sem fjölmargir staðir verða heimsóttir og góð tækifæri gefast til myndatöku. Komið á hótelið síðdegis og kvöldverður á hótelinu kl. 19:00.
15. maí: Kl. 8:30 eru herbergi rýmd og farþegar undirbúa sig fyrir brottför. Rúta ekur hópnum að höfninni þar sem innritun fer fram í ferju sem siglir til Helsinki kl. 10:30 og komið þangað kl. 12:30. Rúta bíður hópsins og ekur ásamt fararstjóra á flugvöllinn þar sem innritun fer fram í flug Icelandair sem er með brottför kl. 15:05. Lent er í Keflavík kl. 15:45 að staðartíma.
Verð á mann 259.000 kr. m.v. gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: 89.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald. Greiðsluseðill berst í heimabanka frá Niko ehf.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til og frá Helsinki – allir skattar og gjöld og 23 kg innrituð taska.
• Gisting í 2 nætur á Scandic Simonkenttå 4* og á Nordic Forum 2* í 2 nætur með morgunverði.
• 2ja rétta kvöldverður á hótelum 4 kvöld (drykkir ekki innifaldir).
• Allur akstur og skoðunarferðir skv. ferðalýsingu.
• Ferja milli Helsinki og Tallin báðar leiðir.
• Íslensk fararstjórn.
Bóka
Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka
fyrir staðfestingargreiðslu.
Uppselt – Biðlisti
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.
