Ferðaskrifstofa eldri borgara er í eigu Niko ehf. sem er handhafi ferðaskrifstofuleyfis frá Ferðamálastofu. Það er okkar fremsta markmið að bjóða áhugaverðar ferðir með skemmtilegri afþreyingu, spennandi áfangastöðum og þægindum sem henta eldri borgurum.
Við tökum sérstakt tillit til þarfa eldri borgara og reynum að koma til móts við óskir þessa hóps á sem flestum sviðum. Einnig viljum við fá góðar ábendingar frá sem flestum. Hægt er að senda okkur tölvupóst á netfangið island@niko.is eða hringja til okkar í síma 783-9300/9301. Við svörum öllum fyrirspurnum samdægurs, alla virka daga.
Skelltu þér með okkur í ævintýri! Hvort sem það er í borg, sveit eða sól. Hér fyrir neðan má sjá úrval væntanlegra ferða sem eru sérhannaðar fyrir þarfir eldri borgara.